Staða úttektar IER á skipulagsferli Álfabakka 2A
15. maí 2026
Innri endurskoðun og ráðgjöf Reykjavíkurborgar (IER) er hluti af stjórnkerfi Reykjavíkurborgar og heyrir stjórnskipulega beint undir borgarráð. Samkvæmt samþykktum Reykjavíkurborgar nýtur innri endurskoðandi Reykjavíkurborgar faglegs sjálfstæðis í störfum sínum gagnvart allri stjórnsýslu borgarinnar, þar með talið borgarstjóra, og hefur óháða stöðu við ákvörðun á umfangi úttekta, framkvæmd þeirra og miðlun niðurstaðna. Endurskoðunarnefnd Reykjavíkurborgar gegnir mikilvægu hlutverki við að tryggja viðeigandi faglegt sjálfstæði og óhæði innri endurskoðanda í samræmi við samþykktir Reykjavíkurborgar og alþjóðlega staðla um innri endurskoðun.
IER vinnur nú að stjórnsýsluúttekt á skipulagsferli vegna Álfabakka 2A í Suður-Mjódd á grundvelli samþykktar borgarstjórnar frá 7. janúar 2025. Samkvæmt samþykktri verkáætlun IER var gert ráð fyrir að lokaskýrsla yrði lögð fram til kynningar í endurskoðunarnefnd í febrúar 2026 og í kjölfarið í borgarráði.
Innri endurskoðandi Reykjavíkurborgar sendi þann 9. apríl 2026 formlegt bréf til forseta borgarstjórnar, formanns borgarráðs og formanns endurskoðunarnefndar þar sem upplýst var um framvindu úttektarinnar, stöðu umsagnarferlis og uppfærða tímaáætlun. Þar kom fram að gert væri ráð fyrir að lokaskýrsla yrði tilbúin um miðjan maí 2026. Bréfið var lagt fram á fundi endurskoðunarnefndar 17. apríl 2026 og í borgarráði 7. maí 2026.
Tafir á verklokum hafa einkum stafað af töfum í umsagnarferli. Við framkvæmd úttektarinnar hefur verið aflað gagna og sjónarmiða frá fjölda aðila, bæði innan og utan Reykjavíkurborgar. Umsagnaraðilum var veitt eðlilegt svigrúm til yfirferðar og athugasemda með hliðsjón af meðalhófi, jafnræði aðila og vönduðum stjórnsýsluháttum.
Skýrsludrög sem send voru umsagnaraðilum voru trúnaðarmerkt vinnuskjal sem afhent voru sem hluti af formlegu umsagnarferli úttektarinnar. Drögin fela ekki í sér endanlega afstöðu IER og kunna að taka breytingum við yfirferð athugasemda, frekari gagnaöflun og faglega úrvinnslu áður en lokaskýrsla verður gefin út.
Framkvæmd úttektarinnar hefur verið í samræmi við faglegt sjálfstæði og óhæði innri endurskoðunar.
Gert er ráð fyrir að lokaskýrsla verði kynnt sem trúnaðarmál á fundi endurskoðunarnefndar í byrjun júní 2026 og í kjölfarið lögð fram hjá borgarráði í samræmi við viðeigandi verkferli borgarinnar.
