Skýrsla IER um skipulagsferli Álfabakka 2A kynnt í borgarráði í dag
18. júní 2026
Á fundi borgarráðs í dag voru kynntar niðurstöður stjórnsýsluúttektar Innri endurskoðunar og ráðgjafar á skipulagsferli Álfabakka 2A í Suður-Mjódd.
Borgarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 7. janúar 2025 að fela Innri endurskoðun og ráðgjöf (IER) að gera stjórnsýsluúttekt á skipulagsferlinu er varðar Álfabakka 2A, þar sem sérstaklega skyldi skoða ferli ákvarðanatöku, tímalínu málsins, eftirlitsferla, regluverkið og framkvæmd þess og athugasemdir íbúa og hvernig unnið var úr þeim.
Hlutverk IER er fyrst og fremst að greina kerfislæga veikleika, draga fram áhættu og annmarka í ferlum og benda á úrbætur til framtíðar með hliðsjón af góðum stjórnsýsluháttum og viðeigandi regluverki. Stjórnsýsluúttektin beinist að málsmeðferð, verklagi og þeim gögnum sem lágu til grundvallar meðferð málsins á umhverfis- og skipulagssviði (USK).
Niðurstöður voru kynntar í endurskoðunarnefnd 21. maí 2026 og á fundi borgarráðs í dag, 18. júní.
Skýrslu IER um skipulagsferli Álfabakka 2A má nálgast hér og einnig er að finna samantekt úttektar í stuttu máli hér.
